Læknabiðstofan
04.11.2008 12:12:08 / kroniskt

Flýjum ekki

Flýjum ekki, flýjum ekki.
Flýjum ekki þetta land.

Það er að batna böl að sjatna.
Báran enn þó knýi sand.

Bölvan öll er blessan hulin.
Bíðum meðan þverrar grand

Flýjum ekki, flýjum ekki
Flýjum ekki þetta land.

Flýjum ekki, flýjum ekki
Flýjum ekki þetta land.

Matt.Joch
....................

Íslenskt söngvasafn
fyrir
Harmóníum I

Safnað hafa og búið til prentunar
Sigfús Einarsson og Halldór Jónasson

Á efnisskrá eru m.a.

Blessaða eyjan vor, Ástkæra ylhýra og Danagrund.











» 0 hafa sagt sína skoðun

28.06.2008 13:15:58 / kroniskt

úbart ladibær

Feðgarnir voru sendir út af örkinni til þess að sækja garðslöngu og bjarga brunninni grasflöt. Móðirin nýtir tímann til vinnu og rembist við að skrifa skýrslu á enskri tungu. Það er ekki fyrr en eftir hálftíma þegar rödd Yohönnu hljómar í annað sinn að hún fattar að útvarp Latibær er á fóninum. Nú er Hjálmar Sveinsson kominn að með  betrun og uppfræðslu, hann hvetur til hjólanotkunar.
Móðirin og sonurinn ferðast þessa dagana um á forláta dönsku reiðhjóli með barnastól. Þetta er 7 gíra flunkuný draumadrossía með körfu. Við virðumst í hverri viku detta í 101 klisjuna samkvæmt skilgreiningum pistlahöfunda fríblaðana, en í dag er pistill um hjólandi miðbæjarstúlkur á svörtum ömmureiðhjólum með körfur.  Það þýðir ekki annað en að umfaðma klisjuna og halda sleitulaust áfram.

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 15:59:52 / kroniskt

lattedrekkandi

Klisjurnar mætast.

Reykvíkingur dissar íbúa landsbyggðar fyrir dráp á ísbirni. Landsbyggðamóðir móðgast og dissar ´´lattedrekkandi´´ íbúa í póstnúmeri 101. (sjá Fréttablaðið)

Lattedrekkandi 101 íbúi er einlægur aðdáandi landsbyggðafólks og móðgast yfir dissinu sem felst í orðum landsbyggðamóðurinnar en ákveður að skrifa ekki grein í Fréttablaðið.








» 0 hafa sagt sína skoðun

03.04.2008 12:45:59 / kroniskt

Útburður og erfidrykkja

33b er sýningarrými  og vinnustofur myndlistamanna og tónlistamanna að
Skipholti 33b. Nafnið vísar í húsnúmer, sjúkrahúsdeild, og
starfsmannaleigur. 33b er fyrir aftan hið sívinsæla Bingó í Vinabæ eða
gamla Tónabíó. Og ekki úr vegi að sameina ferð á sýningu við eina
umferð í Bingó því hin árlega sýning vinnustofunnar verður nú um helgina. Tvísýnt var um framtíð deildarinnar og því blásið til erfidrykkju. Annað kom á daginn og
verður upprisan því að erfidrykkju lokinni.

Sýnendur og flytjendur eru:
Pétur Thomsen, Karen Ósk Sigurðardóttir, Arndís Gísladóttir, Sandra María
Sigurðardóttir,Róbert Örn Hjálmtýsson, Viðar Jónsson, Brynja
Emilsdóttir, Þórunn Inga Gísladóttir, Arnar Ingi Hreiðarsson, Margrét
M. Norðdahl og Elísabet Stefánsdóttir.
Hljómsveitin Les Kunt sem einhverjir kannast við úr pönklagasamkeppni
Rásar 2 frumflytur verkið: Amatör Prostitute.

Opnun er á föstudagskvöld frá kl. 20. - 23 og
opið er um helgina, 5. og 6. apríl frá 14 - 17.

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 16:54:39 / kroniskt

Smurf

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 16:51:59 / kroniskt

Fjós

Ekkert skemmtilegra en að endurupplifa sveitarómans æskunnar í gegnum afkomandann.
Að standa í fjósgætt í hálftíma og segja hæ mumu og svo bæ mumu í annað korter.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 16:38:44 / kroniskt

Kjellingar hjá RÚV

RÚV. Ríkisútvarp allra landsmanna. Bara ekki fyrir kjellingar og smástelpur.

Norsku dómarararnir eru kjellingar og dæma leikinn eins og þetta væru smástelpur að spila.

Norsku dómararnir eru kjellingar og hálfvitar í sitthvorri setningunni hjá íþróttafréttamanni RÚV.

Í merkingunni, Kellingar: Hálfvitar

Í merkingunni, smástelpuleikur: aumingjar í handbolta

Þetta er nú ekki skemmtilegt í beinni útsendingu rásar tvö um miðjan dag. Sem kjelling mælist ég til að lýsandi leiksins verði settur í endurmenntun og jafnvel settur í að taka upp síðasta leikskólabekkinn, það mætti kenna honum nútímalegri níðyrði.

KOMA SOOO STRÁKAR

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 14:51:47 / kroniskt

3 kynslóðir

3 kynslóðir mæðra misstu svefn í að meðal tali 3 ár.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.10.2007 13:58:18 / kroniskt

Gilitrutt vs/ Mjallhvít

Sinnið í lægð með lægðinni. Eins og rigni á augnlokin og einhver strjúki manni um vangann án afláts. Sum sagt svæfandi.  Nú sefur barnið í vagninum, aldrei betur en í rigningu og roki. Barnið og móðirin þræluðu sér á róló í morgun og komu heim með sandkassa utan á rennblautum fötunum. Móðirin er aldrei smartari en á rigningadögum með buxurnar ofaní stígvélunum. Á leið í fjósið fílingur.

Á mánudaginn hlupum við mæðgin einmitt í fiskbúðina í varað við stormi veðri. Með stígvélin yfir buxunum og hnjásíðri regnúlpu af ömmu í xxxl. Áleiðinni upp Skóló þurftum við að fara yfir á hina gangstéttina þar sem stórum svörtum jeppa var lagt þversum yfir okkar megin. Og sem við erum að krossa götuna kemur jeppaeigandinn svífandi í hvítri kápu og háhæluðum leðurstígvélum engin önnur en Birgitta Haukdal. Tilfinning eins og Gilitrutt í steypustígvélum hittir Mjallhvíti með litla vængi á bakinu.

Þess vegna er mjög mikilvægt að klæða sig í sokkabuxur og pils inn á milli og setja á sig varalit fyrir hádegi þó maður sé ''bara heima''.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 00:24:05 / kroniskt

Eitt sinn skáti ávallt skáti.

Bakgrunnur minn sem skáti gerir mér nánast ókleift að fara í ferðalög. Ég er svo innilega við öllu búin.

Ég býð varla í að ferðast erlendis með krakka ég færi á límingunum yfir mögulegum, gæti gerst, aðstæðum.

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 00:11:23 / kroniskt

Íkveikja

Í lok dags, hrmmphhh. Sonur minn sefur nú svefni hinna saklausu í rimlarúminu sínu. Eftir að hafa öskrað úr sér lungun í smá tíma eða þar til móðir hans, ég, tók hann upp og svæfði í fanginu. Þar vill hann vera frekar en einn á koddanum sínum. Hljóðin úr honum minna á,... já ég veit ekki hvað..... eins og sé verið að pína og kvelja lítinn sætan kettling. Þetta er ekki gott uppeldi, þ.e. að taka hann upp og rugga í fangi svo ekki sé talað um það að eftir nokkra klukkutíma vaknar hann aftur til að súpa og fær þá að lúlla í rúmi foreldra sinna þar til dagur rís. Hrikalegt uppeldi, það er varla að maður segi frá þessu. Skrítið hvernig barn sem vaknar skríkjandi á morgnana og brosir allan daginn breytist á kvöldin í organdi vansældarpésa.
Áðan var mér bent á hvursu sorgleg ''pathetic'' ég væri. Þar sem ég hellti mér kampavíni í glas úr mini-kampavínsflösku sem hefur staðið ofan á eldhússkápnum síðan síðasta sumar. Kampavín og léleg bíómynd eða internet þvælingur á laugardagskvöldi. Já þetta er aumkunarvert.

Kampavínið var samt sárnauðsynlegt eftir að ég kveikti í mér í þrefaldri útskriftarveislu fyrr í kvöld.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 10:55:08 / kroniskt

Fyrirmyndir

Lítil kisustelpa hefur tekið sér bólfestu í garðinum okkar. Hún er mjög sæt gulbröndótt með hvíta bringu. Hún byrjaði að sniglast um hjá okkur fyrir viku litla skinnið. Við stelumst til að gefa henni að éta og ég held að Gauja dýralæknir sé að gefa henni eitthvað líka. Ef einhvern langar í sæta kisu þá er þessi greinilega heimilislaus.

Ég held að nágranni okkar, ofurkonan Lóa hafi alið hana. En Lóa, blessuð sé minning hennar, lést nýverið. Lóa var fyrirmynd mín sem eldri borgari. Alltaf ótrúlega smart, stundum í öllu rauðu eða öllu gulu. Í rigningu var hún í háhæluðum pollastígvélum og svaf úti á svölum á sumrin. Hún málaði húsið sitt að utan fyrir nokkrum sumrum, komin hátt á níræðisaldurinn, var á gönguskíðum á veturna og sló grasið sjálf með handsláttuvél. Ljúfur nágranni og yndisleg kona í alla staði.

Lóa og Frú Guðrún West eru konur sem sæma ætti fálkaorðu. Fyrir sjálfsagt margt, enda upplifað tímana tvenna, en ef eitthvað þá fyrir alhliða dásemd. Guðrún West er önnur fyrirmynd mín sem eldri borgari. En hún starfaði á Grund þar til fyrir stuttu og sinnti ömmu minni sem er tveimur árum yngri en hún. Alltaf í nýpressuðum hjúkkubúning frá 1950, með svuntu og kappa í háhæluðum hvítum skóm, óaðfinnanlegt blásið hár og með elskulegheit á vör alla daga. Sannkölluð dama, með hvíta hanska og munnstykki. Hún heillaði öll gamalmennin á Grund og sinnti þeim af einstakri alúð, klappaði og kjassaði sem þeim veitir víst ekki af.

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 22:18:06 / kroniskt

Svín

Í dag var svínað á mig. Ég var að keyra meðfram Iðnó þegar á fúll fart kemur bíll frá Alþingishúsinu og liggur við að hann skeri beygjuna á tveimur hjólum. Köttar alveg á mig. Og ónei það var ekki svartgljándi glæsijeppi. Það var Ómar Ragnarsson á pínulitlum appelsínugulum bíl, á stærð við golfbíl.

Af einhverri ástæðu þótti mér þetta mjög fyndið.

 í morgun vaknaði ég kl. 5:50. við vekjaraklukku, það var ekki eins fyndið.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 22:05:17 / kroniskt

Blogg blogg

Spurning hvort maður hafi þetta enn í sér, bloggið. Hvort það sé manni í blogg borið.
Aflögu tími er lítill aflögu. Skrýtið hvað býsnin, að býsnast, minnkar þegar lítið kríli er
komið í hús. Og blogg er oft mikið býsn. Ég fékk bara hroll þegar ég heyrði kosningasjónvarpið með öðru eyranu yfir eldhúsvegginn en býsnaðist ekkert.
Reyndar kemur býsnin örlítið til baka þegar heilinn fer að virka aftur utan barns og bleyja. Heilinn stillir sig algjörlega inn á að hafa einungis áhuga á heiminum sem minnkar í skyndingu og verður allt í einu 52 cm og 15 merkur. Þessi 15 marka heimur verður svo eina umræðu efnið í nokkurn tíma.

15 merkurnar eru nú orðnar 8 kíló og 70 sentimetrar og það er hægt að fara að býsnast yfir hvað leikskólar eru dýrir og dagmömmur fáar og fæðingarorlofið stutt.

 Annars er hinn heimurinn farinn að rúlla aftur, sá stóri þ.e, og krónískan farin að framkvæmdast við Listahátíð í annað sinn. Það er ágætt alveg hreint. Ég er netttengd á vinnustofunni og drekk þar kaffi og tala í farsíma. Freistast reyndar oft til að vinna í tölvunni heima og fá slefblaut knús svona inn á milli.


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.12.2006 20:03:33 / kroniskt

Jólahvað

image

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7